Skip to content

Röskun á skólastarfi

Fyrir foreldra / for parents / rodzice

Tilmæli um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.

Fyrir starfsfólk skóla / for teachers / personel szkoŁy

Vefur SHS hér.

Ábyrgð foreldra / forráðamanna

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir hverfum og svæðum.

Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í grunnskóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla, skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilegar fjarvistir. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. vegna vanbúinnar bifreiðar til vetraraksturs.

Tilkynningar

Tilkynningar eru settar fram í samvinnu við Veðurstofu Íslands og er þá viðvörunarkerfi hennar haft til hliðsjónar.

Nánari upplýsingar, sjá hér.

Hafi Veðurstofan gefið út gula , appelsínugula  eða rauða  viðvörun þá eru tilkynningar virkjaðar.

Kappkostað er að  senda tímanlega út tilkynningu um röskun á skóla- og frístundastarfi í samstarfi við útvarpsstöðvar og vefmiðla og er miðað við að þær berist eigi síðar en kl. 7 að morgni.

Áríðandi er að foreldrar fylgist með tilkynningum og fari að tilmælum.

Símkerfi skóla eru misvel undir það búin að anna miklu álagi og er foreldrum því bent á að fylgjast vel með veðri og tilkynningum og afla upplýsinga í fjölmiðlum, á vefsíðum skóla og slökkviliðsins (shs.is). Einnig má fá upplýsingar á Facebook-síðum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Foreldrar skulu ævinlega leita eftir staðfestum tilkynningum yfirvalda.

Útsendar tilkynningar SHS eiga ávallt við um höfuðborgarsvæðið í heild, en aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og bæjarhlutum.