Skip to content

Hnetulaus skóli

Í flestum skólum er einhver með bráðaofnæmi, ýmist börn eða starfsfólk. Bráðaofnæmi eru skjót og lífshættuleg ofnæmisviðbrögð
þar sem ofnæmisvaldurinn er oftast fæða, lyf eða skordýrabit.

Nokkur börn í Hólabrekkuskóla hafa verið greind með bráðaofnæmi fyrir hnetum.

Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur. Einnig getur snerting við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur valdið svæsnum ofnæmisviðbrögðum.

Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Hólabrekkuskóli verði hnetufrír skóli. Í því felst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur
(pekanhnetur, kasjúhnetur, möndlur o.fl.).