Sumarkveðja 2022

Starfsfólk skólans þakkar nemendum og foreldrum þeirra ánægjulegt samstarf á liðnu skólaári. Skrifstofa skólans er lokuð frá 20. júní en opnar aftur miðvikudaginn 10. ágúst.
Við óskum öllum ánægjuríks og gleðilegs sumarleyfis og minnum á mikilvægi sumarlesturs.
Skóli hefst að loknu sumarleyfi mánudaginn 22. ágúst 2022, samkvæmt stundaskrá.
Foreldrar barna í 1. bekk verða boðaðir sérstaklega í viðtöl með umsjónarkennara, dagana 22. og 23. ágúst, en skóli hefst samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í 1. bekk, miðvikudaginn 24. ágúst.